19.3.2009 | 16:32
Eins gott að...
Engin göt eða tattú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2009 | 16:10
Karókílag
Ég hef nú aldrei sungið þetta lag í karókí, en ég hef reynt að stæla strákinn Frankí með laginu "New York, New York". Að vísu ekki með neitt sérstaklega góðum árangri.
Bezt held ég að mér hafi tekist upp við lagið "When I'm Sixty Four". Það var í Edinborg og þann flutning tileinkaði ég náttúrulega elskulegri eiginkonu minni.
40 ár frá því Sinatra flutti My way í fyrsta sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2009 | 13:40
Spunaflokkur
Nafngreindur maður sagði eitt sinn eitthvað á þá leið að skynsamur framsóknarmaður væri álíka mikil þversögn og skírlíf hóra (afsakið orðbragðið).
Hér þykir mér þó formaður Framsóknarflokksins mæla af nokkurri skynsemi. Samfylkingin er nefnilega ekkert annað en loftbóluflokkur... sem flokkur er hún eiginlega bara spuni. Þar með er ekki annað hægt en að draga þá ályktun að þeim er engan veginn treystandi. Stefnan er bara spunnin upp jafnharðan.
Annað sem ég verða taka undir hjá formanni Framsóknarflokksins er að þar ólíku saman að jafna við sk. Vinstri -Græna (hér eftir ritað VG). Þar hefur maður alla jafna ekki reynt fólk að öðru en meina það sem það segir og vera heilt í sinni afstöðu. Reyndar er ekki alltaf auðvelt að skilja hvað þeir eru að segja en það er hægt með góðum vilja.
Niðurstaðan er því að VG eru heiðarlegri í sínum málflutningi og þar af leiðandi betur treystandi í pólitísku samstarfi. Þó ég sé engan veginn að halda því fram að þeir séu upp til hópa heiðarlegra eða löghlýðnara fólk en samfylkingarmenn (karlar og konur).
Höfundur ætlar ekki að nota tækifærið og rifja upp glefsur úr alræmdri "Borgarnesræðu". Til þess er ekki tími að svo stöddu.
Samfylkingin „loftbóluflokkur“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 16:17
Hagkvæmt tómstundagaman
Þetta er bezta mál. Kannske þetta verði líka raunin hjá höfuðborginni. Ásóknin í matjurtagarða borgarinnar var reyndar orðin svo lítil að þeim var stórlega fækkað fyrir ekki mörgum árum.
Áður en við hjónin eignuðumst okkar eigin lóð, þar sem konan mín elskuleg sá til þess að gert yrði ráð fyrir matjurtagarði í einu horninu, þá vorum við lengi með svona matjurtagarð í félagi við tengaföður minn.
Það er alltaf gaman að borða eigin framleiðslu og svo er þetta líka búbót. Það kom garðyrkjumaður í garðinn okkar á síðasta ári og þegar hann sá matjurtagarðinn hafði hann orð á því að það væri gaman sjá að svona garðar væru enn til. Alltof margir væru í dag að láta tyrfa yfir matjurtargarðana því þeir nenntu ekki að standa í svona ræktun.
Hagsýnir garðeigendur ætti kannske að pæla upp gott horn á lóðinni hjá sér með vorinu og byrja að rækta.Matjurtagarðar rjúka út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 15:29
Hananú
Það er náttúrlega bara bezta mál að tónlistarmenn fari að vinna í sínum málum. Öðruvísi gerist ekki neitt.
Nú er mér sagt að STEF fái reyndar gjald af öllum tómum diskum, upptökutækjum, tölvum o.þ.h., sem nota má til upptöku og geymslu á tónlist. Þannig að þeir gera ráð fyrir því að svona "stuldur" sé stundaður og eru þegar búnir að innheimta sitt gjald. Einnig af þeim sem nota þessa hluti til annars varðveizlu á tónlist.
Gerir maður þá ekki ráð fyrir að þetta gjald falli niður og um leið að neytendur verði vakandi fyrir því að það skili sér í vöruverð frekar en söluaðilar fái það í kassann?
STEF undirbýr herferð gegn niðurhali á tónlist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 11:37
Hættuleg þróun
Eitt sinn sögðu menn (karlar og konur): Strákar eru strákar. Það þótti ekkert að því. Kynin eru ekki nefnilega ekki eins.
Í ljósi svona frétta dettur manni helzt í hug að skólinn geri einfaldlega ekki ráð fyrir drengjum. Eðli þeirra skuli haldið niðri með lyfjum svo þeir verði viðráðanlegri í kvenmiðuðu umhverfi.
Ég tek fram að ég er einlægur jafnréttissinni. Ég á bæði syni og dætur og ég vil að þau fái öll jafna möguleika á því að njóta sín á sínum forsendum. Ég fagna því að dætur mínar eiga jafna möguleika og bræður þeirra til menntunar og atvinnu, en ég hafna því að synir mínir eigi að gjalda kynferðis síns.
Kynjakvótar eiga að heyra sögunni til. Femínistum þótti það áhyggjuefni á sínum tíma að meirihluti háskólanema væri karlmenn. Það heyrist lítið frá þeim nú þegar verulegur meirihluti er kvenmenn. Nú er kominn tími til að hætta þessum kynjakvótum og láta tilveruna hafa sinn gang.
Það á að heyra sögunni til að kvenfólki sé frekar att út í langskólanám en körlum. Það verður ekki björt framtíð drengjanna okkar þegar við vöknum upp við það að forsjárhyggja femínista hefur orðið til þess að meðal langskólagengins fólks eru karlmenn komnir í verulegan minnihluta.
"Gott á ykkur" segja þá sumir femínistanna."Guð hjálpi þessum konum", segi ég. Eiga þær ekki syni, bræður og feður? Og eru þeir virkilega svona mikil illmenni? Láta þær stjórnast af hefnigirni?
Forsjárhyggja femínistanna er að leiða okkur út á hættulega braut ef það er rétt, sem má leiða líkum að, að verið sé að halda eðli drengja niðri með lyfjagjöf.
Mikill kynjamunur á lyfjatöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.3.2009 | 10:16
Er Björgun á leið í Gufunes?
Það hefur gengið fjöllunum hærra að í burðarliðnum sé að flytja starfsemi Björgunar frá Sævarhöfða og upp í Gufunes.
Eðlilega gleðja slíkar fréttir Bryggjuhverfisbúa því þeir hafa alla tíð mátt búa við töluvert ónæði af nábýli sínu við Björgun. Mér er t.a.m. sagt að líftími ýmissa raftækja s.s. tölva og sjónvarpstækja sé styttri en eðlilegt getur talist í Bryggjuhverfinu vegna sandfoks auk þess sem töluvert ónæði sé af hávaða og umferð.
Reyndar heitir það svo að áætlanir Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar geri ráð fyrir því að framkvæmdaleyfi í Gufunesi verið gefið Björgun til 10 ára meðan undirbúin er framtíðaraðstaða fyrir fyrirtækið á Álfsnesi.
Nú þegar hefur Umhverfis- og samgönguráð gefið jákvæða umsögn um framkvæmdaleyfi og eins og stendur er beðið eftir umsögn frá Skipulagsráði.
Maður veit að vísu til þess að ekki hafi allar tímaáætlanir staðist og næsta víst að fái Björgun framkvæmdaleyfið þá muni það verða til lengri framtíðar en 10 ára. Auk þess er ekki heldur loku fyrir það skotið að þegar einu sinni verður búið að fylla upp á Gufunesi munu gamlar áætlanir um gámahöfn og annað slíkt koma upp á yfirborðið.
Það er líka morgunljóst flytji Björgun starfsemi sína í Gufunes munu Grafarvogsbúar, sérstaklega í Hamra- og Rimahverfum, eiga eftir að finna fyrir því ónæði sem nú hrjáir Bryggjuhverfismenn.
Með fullri virðingu fyrir fyrirtækinu Björgun og starfsemi þess þá verður ekki um það deilt að slíkur rekstur á ekki heima í nágrenni við íbúabyggð. Ekkert frekar en gámahöfn.
Það er því engin lausn og algerlega óásættanlegt að vandamál Bryggjuhverfisbúa verði fært um nokkur hundruð metra til þess að verða framtíðarvandamál Grafarvogsbúa.
Þessar áætlanir komu til umræðu á fundi Hverfisráðs Grafarvogs í síðasta mánuði og ályktaði ráðið þá á þessa leið og var ályktunin samþykkt samhjóða.:
Hverfisráð Grafarvogs lýsir furðu sinni á að Umhverfis- og samgönguráð hafi veitt jákvæða umsögn um framkvæmdaleyfi fyrir uppfyllingu í Gufunesi og hugsanlegan flutning á Björgun úr Bryggjuhverfi yfir í Gufunes án þess að ráðið hafi fengið tækifæri til umsagnar. Hverfisráð Grafarvogs lítur það alvarlegum augum að ítrekað sé farið framhjá umsagnarrétti ráðsins og stefnu flokkanna. Ennfremur bendir ráðið á að þessi ákvörðun er gegn stefnu flokkanna í upphafi kjörtímabils.
Hverfisráð Grafarvogs, Íbúasamtök og fleiri munu því beita sér gegn því að þessi flutningur Björgunar megi eiga sér stað því ljóst má vera að hann er andstæður vilja alls þorra Grafarvogsbúa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 15:27
Hvaða bull er þetta í manninum?
Svo ríkisstjórnin hefur samþykkt áætlun um kynjaða hagstjórn... er ekki allt í lagi með þetta lið? Hvað í ósköpunum er kynjuð hagstjórn? Eitthvað sem Steingrímur segir að sé "alþjóðlega viðurkennd aðferðarfræði". Er maðurinn að tala í alvöru? Til hvaða þjóða er hann eiginlega að vitna og um hvað er hann að tala?
Væri ekki nær fyrir þetta lið að fara að vinna og vera ekki í einhverjum óskiljanlegum orðaleikjum? Og svo segir hann að það sé "löngu tímabært að Íslendingar taki á þessum málum". Hvaða málum, Steingrímur?
Það vill til að mér er ekki tamt að blóta eða vera persónulegur í rituðu máli, en nú munaði mjóu.
Ætli maður sjálfur fari ekki að boða "skóstærðar hagstjórn". Það væri örugglega hægt að vitna til einhverra heimilda sem réttlæta að slíkt væri kallað "alþjóðlega viðurkennd hagfræði". Já, og meira að segja "löngu tímabær".
Guð minn góður, er þetta maðurinn sem fékk heil 453 atkvæði í forvali?
Þjóðarbúið mun ná sér á strik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2009 | 14:15
Týnd frétt
Mér finnst þetta ekki merkileg frétt að öðru leyti en því að nú vitum við að líkamsleifar systur Kleópötru hafa fundist. Það í sjálfu sér er stórmerkilegt. Fréttin sú tapast hins vegar í löngu máli um þekktar staðreyndir.
Það sem mig langar að nefna er í fyrsta lagi: Sagt er að Keópatra og félagar hafi verið sögupersónur. Hér er mætti óupplýstur lesandi draga þá ályktun að þau væru skáldsaganpersónur. Líklega er þó frekar átt við að þau hafi verið sögulegar persónur. Þ.e.a.s. eiga sér stoð í mannkynssögunni.
Í öðru lagi er sagt að vitað sé að Kleópatra hafi verið afkomandi hershöfðingja frá Makedóníu og hún hafi tilheyrt "Ptolemaic-veldinu". Hér er líklega á ferðinni tilraun til þess að þýða "Ptolemaic Dynasty". Í stuttu máli: Klepatra var af ætt Ptólemea, sem voru afkomendur Ptólemeusar. Ptólemeus þessi var einn af hershöfðingum Alexanders mikla og eins og hann Makedóníumaður. Ptólemeus var einn af sk. "arftökum" Alexanders en þeir voru hershöfðingjar þess mikla herkonungs og skiptist veldi hans á milli sín þegar hann var allur. Meðal þeirra voru t.d. auk Ptólemusar þeir Selevkus og Lýsimakkus.
Að Kleópatra hafi verið af afrískum uppruna er ekkert einkennilegt. Egyptaland, sem kom jú í hlut Ptólemusar og afkomenda hans, er í Afríku. Það er því eðlilegt að ætt Ptólemea hafi blandast afrískum ættum. T.a.m. konugsættum frá Núbíu, þar sem Kúsítaríkið stóð enn með nokkrum blóma á sama tíma og Ptólemear réðu Egyptalandi.
Kleópatra af afrískum uppruna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 11:48
Úllalla...
Það er náttúrulega ekki gott ef tónlistarmenn geta ekki lifað af vinnu sinni og það er ekki gott ef fólk er óheiðarlegt og stelur efni á þennan hátt.
Spurning hvort ekki sé hægt að bregðast við þessu á einhvern hátt frekar en að fara í fýlu og hóta að hætta bara. Með sameiginlegu átaki hljóta tónlistarmenn að geta fundið lausn á þessu. Það leysir engan vanda að breiða upp fyrir haus.
Og ef ekki er brugðist við er eins víst að tónlistarmennirnir lendi bara á launaskrá ríkisins á ek. listamannalaunum. Það væri heldur ekki gott.
Bubbi hótar að hætta útgáfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Emil Örn Kristjánsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- altice
- athena
- bassinn
- benediktae
- bjarnimax
- carlgranz
- ea
- fhg
- fullvalda
- gattin
- gauisig
- gunnargunn
- h2o
- heimssyn
- helgi-sigmunds
- himmalingur
- hlynurs
- holmarinn
- hordurhalldorsson
- hrenni
- iceberg
- jaherna
- jakobk
- jonhalldor
- jonlindal
- jonvalurjensson
- jorunnfrimannsdottir
- kje
- krist
- kristinm
- kruttina
- ksh
- lifsrettur
- minos
- nr123minskodun
- rabbabara
- rocksock
- runirokk
- rynir
- saemi7
- samstada-thjodar
- shv
- skjalfandi
- sumri
- texi
- tharfagreinir
- theodor
- thjodarheidur
- tibsen
- tilveran-i-esb
- tomasha
- valdimarjohannesson
- vig
- zeriaph
- zumann
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar