25.3.2009 | 16:52
Hvað gekk þessum unga manni til?
Það er svona að eiga heima í stóru húsi. Ef húsið væri minna væri táknið ekki svona áberandi.
Það er hins vegar greinilegt hvað piltinum gengur til. Hann dauðlangar í lítið systkini.
Nú veit ég ekki hvað þessi hjón eiga af börnum en húsið er greinilega nógu stórt til að hýsa dágóðan fjölda barna. Ég held þau ættu að endurskoða afstöðu sína til frekari barneigna. Alla vega hefur drengurinn lagt mikið á sig til að fá foreldra sína til fjölga mannkyninu enn frekar.
Svo þykir mér alltaf jafn leiðinlegt að sjá þegar kastað er til höndunum við þýðingar. "Cerne Abbas Giant" á náttúrulega að kalla "Cerne Abbas risinn". Þó Íslendingar kalli þessa ákveðnu mynd, sem hér er vitnað til, oftast "Dónann". Dóninn er reyndar ein margra "hlíðamynda" í Englandi. Hann er í Dorset-héraði og til skamms tíma var hann talinn ævaforn en í dag vilja flestir meina að hann sé líklega frá 17. öld. Og svo mun víst vera um fleiri slíkar myndir, sem er að finna víða á þessum slóðum, að þær eru ekki eins gamlar og áður var talið.
Málaði risavaxið reðurtákn á hús foreldranna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2009 | 13:53
Láta Cindy í friði?
"Látið mig bara í friði", segir Cindy Crawford. Hvað er hún þá að láta ljósmynda sig nakta til birtingar í víðlesnu tímariti? Mér finnst slíkt bara kalla á athygli, svo hún getur bara sjáfri sér um kennt, blessunin.
Svo á ég erfitt með að skilja fullyrðinguna: "...segist líta vel út nakin, sérstaklega í ljósi þess að hún er tveggja barna móðir." Hví ættu tveggja barna mæður ekki að líta almennt vel út, naktar sem klæddar?
Jafnvel betur en margar barnlausar.
Lítur vel út nakin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.3.2009 | 17:12
Vesalings Ögmundur
Nú á Ögmundur bágt. Hann er búinn að fara með gýfuryrðum og gagnrýni á allt sem gert hefur verið hingað til og þózt vita allt betur. Svo þegar í hringinn er komið gefst hann strax upp.
Það vill til að við munum vera með næstdýrasta heilbrigðiskerfi í heimi og það er eitthvað verulega mikið að ef ekki er hægt að hagræða þar. Þetta vissi Guðlaugur Þór og hann vissi að það þurfti að fyrst af öllu þurfti að taka til á toppnum. Það er ekki hagur sjúklinganna að verið sé að ausa fé í stjórnendur og millistjórnendur. Það er ekki hagur sjúklinganna að læknar séu að fá yfir 3millur í mánaðarlaun. Þeir komast af með minna.
Höfum í huga að heilbrigiskerfið hér er miðað við allt aðra tíma en eru í dag. Samgöngur og fjarskipti nútímans bjóða einmitt upp á að fækka stjórnendum og setja fleiri heilsugæzlur undir sömu yfirstjórn.
En Ögmundur þorir ekki að hrófla við toppunum hann gefur hann þeim bara allt aftur til baka til að hafa þá góða. Honum finnst víst betra að níðast á sjúklingum og þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem lægra eru launaðir. Það mætti halda að heilbrigðiskerfið miðaðist við að hafa sem flesta hálaunamenn í vinnu en ekki að gagnast sjúku fólki
Sakaði Ögmund um kjarkleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
24.3.2009 | 11:24
Eftirlaununum reddað
Nektarmynd fyrir 99 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2009 | 16:27
Sko Brúsa
Svo Brúsi karlinn er kominn í hnapphelduna á ný... og það með dömu sem gæti verið dóttir hans. Ég held ég sjálfur myndi nú ekki þora svona löguðu. Ekki þar fyrir að ég er nú búinn að eiga sömu konuna (og hún mig n.b.) í meira en 30 ár og ég hef ekkert hugsað mér skipta.
Hvað um það. Brúsi er fínn leikari og kemst vel frá því að leika hasar (Die Hard), drama (6th Sense) og grín (Whole 9 Yards). Þess vegna líkar mér vel við Brúsa.
Hvort hann hann sé kvæntur og hverri kemur mér ósköp lítið við.
Bruce Willis kvæntur á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2009 | 12:36
Nano
Indverjar eru ágætir. Þessi næstfjölmennasta þjóð heims er einnig fjölmennasta lýðræðisríki veraldar og þriðja mesta herveldi heims. Andstæður í þjóðfélaginu munu vera gífurlegar og hverjum sem er væri hollt að horfa á kvikmyndina "Viltu vinna milljarð" til að gera sér, þó ekki væri nema örlitla, grein fyrir þessu þjóðfélagi.
Fyrir ekki löngu ákváðu Indverjar að farsímavæða þessa fjölmennu og, að stórum hluta, fátæku þjóð. Þeim tókst það sem þeir ætluðu sér. Þ.e. að framleiða farsíma sem kostar innan við 2.000,- krónur.
Nú hafa þeir einnig ákveðið að netvæða þjóðina og munu vera búnir að hanna frumgerð af fartölvu, sem á að kosta innan við 2.000,- krónur.
Svo á líka að bílvæða Indverja og nú er Nano-bifreiðin að koma á markaðinn. Bíll, sem kostar innan við 250.000,- krónur.
Maður getur varla annað en dáðst að slíkri framtakssemi.
Nú get ég vel unnt Indverjum þess að eiga sinn fjölskyldubíl og vissulega mun Nano-bifreiðin gera mörgum, bæði á Indlandi og víðar, það mögulegt. Mörgum annars hefðu aldrei getað eignast slíkt farartæki, sem okkur Íslandi finnst sjálfsagt að eiga. Enda eru fleiri bifreiðar hér en ökuleyfi.
Ég kemst samt ekki hjá því að hugsa um mengunina og olíunotkunina, sem mun stóraukast verði þessi áætlun að veruleika. Ég endurtek að ég get vel unnt fátækum Indverjum og annara þjóða fólki að eignast bíla en mig óar við því ef bílaeign mannkyns eykst um hugsanlega einhverjar milljónir.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig indverskur skopmyndateiknari sér fyrir sér framtíðina. Nano-birfreið við hvert hús... þó húsin sjálf séu án allra þæginda þ.m.t. hitunar. Hugsanlegar eru áherzlunar ekki réttar.
Heimsins ódýrasti bíll í sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.3.2009 | 20:22
Af vatnstanki
Einhver ykkar, kæru lesendur kunna að hafa tekið eftir því að ykkar einlægur birtist á annari blaðsíðu Fréttablaðsins í dag. Til að gera betur grein fyrir því máli eru hér því nokkur þankabrot mín um þetta mál.
Grafarvogsbúar hafa óskað mjög eindregið eftir útsýnispalli og einhverri frekari aðstöðu á sk. Hallsteinshöfða fyrir ofan Gufunes. Þar er m.a. höggmyndagarður, fjölfarin gönguleið, fallegur útsýnisstaður og upplýsingaskilti um sögu staðarins. Enda er jörðin Gufunes einn af mestu sögustöðum í landi höfuðborgarinnar og eru fleiri slík skilti í undirbúningi.
Þarna stendur einnig vatnstankur frá þeim tíma þegar Áburðarverksmiðjan var reist fyrir u.þ.b. 60 árum síðan fyrir sk. Marshallaðstoð. Talið var að vatnstankurinn myndi nýtast vel sem útsýnispallur, bæði vegna staðsetningar og ekki sízt fyrir það að hann er, sem slíkur, einnig sögulegar minjar um merkilegt athafnatímabil í sögu þjóðarinnar.
Nú brá hins vegar svo við að í byrjun siðustu viku komu menn og vélar á vegum Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar og rifu umræddan vatnstank niður án frekari fyrirvara.
Það kann s.s. vel að vera að vatnstankurinn hafi ekki hentað sem slíkur til að gera á honum útsýnispall eða hann orðinn of skemmdur. Það er ekki málið. Málið er að hjá Framkvæmda- og eignasviði borgarinnar hefur greinilega ekkert verið unnið í því að útfæra óskir íbúa heldur var undirbúningur að niðurrifi var greinilega í fullum gangi á sama tíma og fulltrúar í Hverfisráði Grafarvogs og stjórn íbúasamtaka Grafarvogs vissu ekki annað en verið væri að vinna að margítrekuðum hugmyndum íbúa.
Því er borið við að hætta hafi stafað af vatnstankinum og það er vissulega rétt. Sú hætta hefði hins vegar ekki verið til staðar hefði verið unnið að framkomnum hugmyndum um framtíð umrædds vatnstanks
Það er náttúrulega vítavert gerræði af hálfu yfirmanna Framkvæmda- og eignasviðs að fara sínu svona fram án nokkurs samráðs við kjörna fulltrúa.
Það hefði verið lágmarks kurteisi af hendi Framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar að láta hverfisráðið vita hvað til stóð og einnig hvað þeir hafa hugsað sér að gera til að koma til móts við margítrekaðar óskir íbúa.
Nú er vatnstankurinn horfinn og ástæðulaust að gráta hann frekar en íbúar eiga kröfu á því að tafarlaust verði ráðist í að byggja snyrtilega útsýnispall með bekkjum o.þ.h. Ekki er minna lýti eða hætta að mulningnum af vatnstankinum þar sem hann liggur nú hlíðinni fyrir ofan Gufunes.
Stundum spyr maður sjálfan sig til hvers fólk sé vinna í ráðum og nefndum á vegum borgarinnar ef embættismenn halda að þeir geti bara farið sínu fram hvað sem tautar og raular.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.3.2009 | 16:12
Ekki vitlaust
Þetta var óvitlaust. Það vill til að fólk kaupir ekkert meira þó verzlanir séu opnar lengur. Innkaupatíminn lengist bara.
Hins vegar er ég viss um að lengdur opnunartími bitnar bara á vöruverði og starfsfólki verzlana.
Opnunartími verslana í Kringlunni styttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2009 | 15:56
Stríðsglæpir er rétta orðið
Voðaverk kallast þetta í fyrirsögn og það er vægt til orða tekið. Þetta eru ekkert minna en stríðsglæpir og ættu sem slíkir að vera til umfjöllunar hjá Alþjóðadómstólnum.
Við getum samt verið viss um að stríðsglæpamennirnir verða ekki látnir gjalda neins, nema síður sé. Þeirra verk eru þóknanlega landsyfirvöldum.
Vont þegar svona glæpir þrífast í skjóli yfirvalda sem síðan njóta verndar öflugasta herveldis Jarðarinnar. Hversu blindir geta menn þózt vera?
Ísraelar frömdu voðaverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2009 | 13:58
"Lína" hvað?
Vitið þið hvað? Mér er eiginlega alveg sama. Ég hef aldrei skilið þessar "fatalínur". Hvað er eiginlega verið að tala um? Er þetta svona eins og Mávastellið eða eitthvað svoleiðis, þar sem hægt er að fá hvern einasta hlut sem við á í sömu "línu"? Eða er þetta svona eins og bifreiðagerðir þar sem hægt er að fá aðeins betra af hverju hlut... svona eins og Toyota Yaris Terra eða Toyota Yaris Sol? Og hverju má svo búast við af téðum Gallagher? Segir nafn hans eitthvað til um hvernig viðkomandi lína mun líta út?
Spyr sá sem ekki veit.
Enn og aftur, ég skil ekki þessar "fatalínur" eða þessi nöfn sem fötin kallast; Armani, Boss eða Lagerfeld. Sjálfur kaupi ég föt með hliðsjón af því hvort mér finnist þau fara mér (með fullu tilliti til álits eiginkonu minnar), hvort mér líður vel að klæðast þeim og hversu hagkvæm þau eru í innkaupum. Kannske er ég gamaldags og kannske er ég bara "lummó" í klæðaburði en ég er sáttur og það eitt er nokkuð mikils virði.
Kominn í tískuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Emil Örn Kristjánsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- altice
- athena
- bassinn
- benediktae
- bjarnimax
- carlgranz
- ea
- fhg
- fullvalda
- gattin
- gauisig
- gunnargunn
- h2o
- heimssyn
- helgi-sigmunds
- himmalingur
- hlynurs
- holmarinn
- hordurhalldorsson
- hrenni
- iceberg
- jaherna
- jakobk
- jonhalldor
- jonlindal
- jonvalurjensson
- jorunnfrimannsdottir
- kje
- krist
- kristinm
- kruttina
- ksh
- lifsrettur
- minos
- nr123minskodun
- rabbabara
- rocksock
- runirokk
- rynir
- saemi7
- samstada-thjodar
- shv
- skjalfandi
- sumri
- texi
- tharfagreinir
- theodor
- thjodarheidur
- tibsen
- tilveran-i-esb
- tomasha
- valdimarjohannesson
- vig
- zeriaph
- zumann
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar