8.4.2009 | 16:04
Hvurslags?
Hamingjan sanna. Er líka eitthvað að í Danmörku... og jafnvel víðar? Svei mér þá ég sem hélt að kreppan og téð banka-"menning" væri einangrað íslenzkt fyrirbæri.
Það á kannske eftir að koma í ljós að heimskreppan er ekki bara Sjálfstæðisflokknum að kenna.
Skyldu Steingrímur Joð og Álfheiður vita af þessu?
Sjúk menning innan bankageirans" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 13:24
Gott hjá þeim
Þetta er gott framtak hjá bæði borgarstjóra og samgönguráðherra.
Það er löngu tímabært að Reykjavíkurflugvöllur fái sómasamlega flughöfn. Ætli Reykjavík sér að standa undir nafni sem höfðuborg Íslands verður hún um leið að vera samgöngumiðstöð fyrir landið allt.
Nú mun hún geta gengt því hlutverki með meiri sóma en fyrr með samgöngumiðstöð sem er bæði flughöfn og umferðarmiðstöð. Auk þess munu allar samgöngur færast nær miðbænum og samgöngumiðstöðin nýja mun genga svipuðu hlutverki og aðaljárnbrautarstöðvar gegna víða í höfuðborgum.
Svo mun framkvæmdin einnig skapa atvinnu og ekki veitir af. Eins og ég hef oft sagt áður: Það er betra að borga fólki eitthvað meira fyrir að skapa verðmæti en atvinnuleysisbætur fyrir að líða illa. Einmitt þess vegna á hið opinbera, ríki og sveitarfélög, að fara núna í framkvæmdir sem aldrei fyrr.
Þú stendur þig vel, Hanna Birna. Ég er stoltur af þér.
Framkvæmdir við samgöngumiðstöð geti hafist í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2009 | 11:21
Enn er spurt...
Þetta gæti hugsanlega orðið hið bezta mál. Ég var farinn að hafa áhyggjur af þeim útgjöldum sem sumarnámskeið gætu bakað ríkissjóði. Gætum samt að tvennu:
Í fyrsta lagi þá er það ekki alltaf til fyrirmyndar að vinna launalaust. Það skapar fordæmi og hugsanlega óréttmætar væntingar til launafólks. Það er ekki á allra færi að vinna án launa.
Í öðru lagi væri gaman að vita hvort hér sé um lausráðna kennara að ræða, fyrst talað er um að þeir ætli að kenna launalaust. Ég hefði haldið að fastráðnir kennarar væru á launum allt árið.
Taka ekki laun fyrir kennsluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2009 | 23:53
Stórt er spurt:
Í fyrsta lagi: Hvaða heimild er fyrir þessari "frétt"?
Í öðru lagi: Hvað styrkti "FL Group" aðra stjórnmálaflokka mikið?
Í þriðja lagi: Hversvegna er þetta að koma upp á yfirborðið núna fyrst?
Í fjórða lagi: Hversu óvönduð getur fréttamennska hjá einum fjölmiðli orðið?
30 milljóna styrkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
7.4.2009 | 17:06
Svín...
Það eru svona fréttir sem fylla mann réttlátri heift og reiði. Það eru svona féttir sem þjappa þjóðinni saman.
Hvernig væri að Sigrún Björk gæfi okkur nafn og heimilisfang óþokkans? Þjóðin gæti þá sameinast um að senda honum, hver um sig, eitt póstkort með mynd af svíni og skilaboðunum "You Pig". Ætli hann myndi sjá eftir uppsögninni strax á fyrsta þúsundi póstkortanna.
Var rekin vegna þjóðernis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2009 | 15:58
Góðan bata, Geir
Baráttukveðjur til þín og þinnar fjölskyldu, Geir.
Megi bati þinn verða skjótur og góður.
Kveðja/Emil
Geir gekkst undir framhaldsmeðferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2009 | 15:03
Sko til...
Ekki hélt ég að ég ætti eftir að segja þetta:
"Jóhanna og Steingrímur, væri ég með hatt tæki ég ofan fyrir ykkur." Þar kom að því að ríkisstjórnin áttaði sig.
Enda var eitt sinn haft eftir Össuri Skarphéðinssyni: Stjórnarskráin er grunnlög lýðveldisins og það er mikilvægt að um þau sé fjallað af mikilli ábyrgð og það sé reynt að ná sem breiðastri og víðtækastri samstöðu um þau mál.
Nú geta sjálfstæðismenn kannske gert orð Ögmundar Jónassonar að sínum: " ....rétt [er] að minna á að stjórnarandstöðunni hefur ... tekist einmitt með langri umræðu að koma í veg fyrir vanhugsuð og stórskaðleg stjórnarfrumvörp..."
Það er ekkert sem heitir. Jafnmikilvægt plagg og stjórnarskráin krefst þess að farið sé varlega að öllum breytingum á henni. Það er gersamlega ábyrgðarlaust að þvinga fram stjórnarskrábreytingar kortéri fyrir kosningar til þess eins að kaupa sér tímabundnar vinsældir.
Koma til móts við Sjálfstæðisflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2009 | 13:13
Verum raunsæ
Það er með ólíkindum að lesa það sem sumir vefritarar hafa um þessa frétt að segja. Það mætti halda að við hér á Íslandi værum ein í heiminum.
"Eitthvað annað en álver," segir fólk. Hvernig væri þá að vinna raunhæft í því að finna "eitthvað annað". Vinna raunhæft í því að koma með orkufreka valkosti við álverin. Í stað þess að vera að fjasa endalaust um hversu óhentug, óhagkvæm og mengandi þau eru.
Ég er enginn sérstakur álverssinni og mér finnst ekki rétt að setja öll eggin í sömu körfuna, eins og sumir segja. Við skulum þó gera okkur grein fyrir því að allt fjas um mengun verður að skoðast í samhengi. Ég er umhverfisverndarsinni og hef áhyggjur af mengun á heimsvísu. Við getum ekki setið hér á okkar eylandi og haldið að ef við byggjum ekki álver þá sé unnin áfangasigur í baráttunni gegn mengun í heiminum. Þvert á móti. Álverið verður byggt, nolens volens, og verði það byggt í Kína eða Indlandi mun það menga enn meira en sé það byggt hér. Það mun hafa neikvæðari áhrif á mengun fyrir allt mannkynið, því ef einhver mígur í laugina þá syndum við öll í hlandinu.
Til að komast af verðum við líka að nýta þær auðlindir sem við eigum til að skapa atvinnu og útflutningstekjur. Það er ekki raunhæf lausn að setja alla í girðingarvinnu uppi á hálendinu, þó Kolbrún Halldórsdóttir haldi öðru fram.
Við eigum orku og við eigum endurvinnanlega orku. Að nýta hana, innan skynsamlegra marka, og selja hana skapar þá atvinnu og þær útflutningstekjur sem okkur sárvantar. Það minnkar líka mengun á heimsvísu, sem hlýtur að vera eftirsóknarvert.Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í meirihluta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2009 | 14:06
Eru menn (karlar og konur) orðnir vitlausir?
Það er með eindæmum hvernig þessi ríkisstjórn hagar sér. Minnihlutastjórnir hafa bara eitt hlutverk: Að láta hlutina ganga í skamman tíma þar til gengið er til kosninga. Þessi ríkisstjórn hagar sér eins og hún sé nýorðin til með miklum kosningasigri.
Í fyrsta lagi þá á þessi ríkisstjórn að einbeita sér að því að koma hjólum atvinnulífsins í gang og halda þeim gangandi meðan hún er við störf. Í öðru lagi þá er það vítavert virðingarleysi við þjóðina, stjórnarskrána og þingið að afgreiða stjórnarskrárbreytingar með einhverri fljótaskrift. Stjórnarskráin eru þau lög sem öll önnur lagasetning byggir á og hún er sá öryggisventill sem kemur í veg fyrir að hægt sé með lagasetning að ráðast gegn þeim grundvallarmannréttindum og lögmálum sem samfélagið byggir á. Að kasta til hendinni við slíka vinnu til þess að kaupa sér tímabundnar vinsældir er ábyrgðarlaust með öllu.
Ég skal fúslega viðurkenna að það er tímabært að endurskoða stjórnarskrána og ég er hrifinn af þeirri hugmynd að kalla til stjórnlagaþings til að sinna þeirri vinnu. Mér finnst einnig að stjórnarskrárbreytingar eigi í öllum tilvikum að bera undir þjóðaratkvæði. Reyndar vil ég nota tækifærið og leggja til að í stað orðsins stjórnlagaþing verði notað orðið þjóðfundur, eins og gert var 1851.
Ég vil bara minna á nokkur orð sem voru látin falla síðast þegar ræddar vou breytingar á stjórnarskránni, vorið 2007:
Össur Skarphéðinsson: Stjórnarskráin er grunnlög lýðveldisins og það er mikilvægt að um þau sé fjallað af mikilli ábyrgð og það sé reynt að ná sem breiðastri og víðtækastri samstöðu um þau mál.
Kolbrún Halldórsdóttir: Eins og ég sagði finnst mér þetta vera óðagot og mér þykir það mjög miður því að hér er verið að fjalla um afar víðtækt og mikilvægt mál sem ég held að þjóðin verðskuldi að fái betri umfjöllun um en hér virðist eiga að fást.
Ögmundur Jónasson: Stjórnarskránni á ekki að breyta í þeim tilgangi að afla kjörfylgis í aðdraganda kosninga. [...] Það er grundvallaratriði að um stjórnskipan þjóðarinnar ríki stöðugleiki, sátt og festa.
Taka skal fram að þær breytingar sem þá voru til umfjöllunar voru dregnar til baka þar sem ekki náðist um þær víðtæk samstaða.
Dagskrártillaga felld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.4.2009 | 23:48
Hví í ósköpunum?
Af hverju í veröldinni ætti Andrés F. Rasmussen að biðjast afsökunar á einhverju sem birtist í Jyllandsposten? Ekki er hann ritstjóri þess annars ágæta blaðs.
Hvað eru tykneskir ráðamenn að hugsa? Skilja þeir ekki að í lýðræðisríki hefur forsætisráðherra ekki yfir fjölmiðlum að segja? Eða er slíkt kannske ofvaxið þeirra skilningi? Er það svo fjarri þeirra eigin raunveruleika?
Annars þykir mér lítið lagst fyrir drenginn Drésa ef hann ætlar nú að fara að byðjast afsökunar á teikningum, sem birtust í einhverju blaði sem hann hvorki stýrir né ber ábyrgð á.
Segja Fogh biðjast afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
Emil Örn Kristjánsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- altice
- athena
- bassinn
- benediktae
- bjarnimax
- carlgranz
- ea
- fhg
- fullvalda
- gattin
- gauisig
- gunnargunn
- h2o
- heimssyn
- helgi-sigmunds
- himmalingur
- hlynurs
- holmarinn
- hordurhalldorsson
- hrenni
- iceberg
- jaherna
- jakobk
- jonhalldor
- jonlindal
- jonvalurjensson
- jorunnfrimannsdottir
- kje
- krist
- kristinm
- kruttina
- ksh
- lifsrettur
- minos
- nr123minskodun
- rabbabara
- rocksock
- runirokk
- rynir
- saemi7
- samstada-thjodar
- shv
- skjalfandi
- sumri
- texi
- tharfagreinir
- theodor
- thjodarheidur
- tibsen
- tilveran-i-esb
- tomasha
- valdimarjohannesson
- vig
- zeriaph
- zumann
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar