Málfarshornið - smekkleysa

Á vefsíðunni mbl.is og hugsanlega víðar birtist manni þessa daga auglýsing frá heimasíðunni matarkarfan .is

Þar er yfirskriftin eftirfarandi: Kaubdu íj matin i budin (Pólska)

Ég verð að segja eins og er að mér finnst þetta ósmekklegt. Í fyrsta lagi er verið að nauðga móðurmálinu á grófan hátt og í öðru lagi er verið að hæðast að þeim útlendingum, sem hafa sezt hér að og eru að fóta sig á tungumálinu, ef svo má að orði komast.

Mér þykir það virðingarvert þegar erlendir borgarar, bæði þeir sem hér dvelja til lengri og skemmri tíma og  einnig þeir sem ætla að setjast hér að til frambúðar, gera sitt bezta til að nota íslenzku í samskiptum sínum. Það er ekki alltaf auðvelt að tileinka sér nýtt tungumál og getur kostað nokkur bros, einstaka hlátur og vingjarnlegar ábendingar. En einmitt þannig þjálfast fólk og lærir að lokum að beita nýju máli á réttan hátt.

Að gera slíka viðleitni að aðhlátursefni og skotspæni er ekki hvetjandi. Því fer ég fram á, fyrir mína parta, að matarkarfan.is fjarlægi tafalaust umrædda auglýsingu og biðji pólska gesti og Íslendinga af pólskum uppruna afsökunar.

Auk þess er "pólska" ritað með litlum staf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Hví skyldi ekki mega gera grín að þessu eins og öðru. Hefurðu aldrei séð Indverjann í Simpsons eða Örn Árnason að leika Pólverja í Spaugstofunni? Ekki rofl vinu minn, hafa bara litin humor. Þa betra. Þér líða betur litli minn.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.5.2009 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Emil Örn Kristjánsson

Höfundur

Emil Örn Kristjánsson
Emil Örn Kristjánsson
Íhaldsmaður

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...gonguferd
  • ...cerne_abbas
  • ...nano
  • takk faroe islands 501x101px.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 4617

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband