Nú er nóg komið!

Góðir Íslendingar, við stöndum ein. Í alþjóðasamfélaginu stöndum við ein... eða svo gott sem, þeir einu sem hafa sýnt okkur skilyrðislausa samstöðu eru vinir og okkar og frændur Færeyingar.

Við slíkar aðstæður getum við ekkert annað en staðið saman. Ég ætla ekki að gera mér upp samúð með þessum kynbróður mínum sem skyndilega, eftir 13 mánaða aðskilnað, mundi eftir því að hann átti börn einhversstaðar. Ég hvet okkur til þess að  standa vörð um þessa íslenzku fjölskyldu og sjá til þess að íslenzkum ríkisborgurum (les.: umræddum drengjum) verði ekki rænt. Hleypum ekki sendimönnum bandarískra yfirvalda eða Interpól til landsins til þess að fremja voðaverk.

Nógu miklu ætla þessir andsk... útlendingar að hafa af okkur. Nú er nóg komið. Hingað og ekki lengra! Mannrán mega ekki líðast!

Fyrst hægt að var að blása til samstöðu um að koma Fisher karlinum undan refsivendi bandarískra yfirvalda og veita honum hæli hér á landi ætti það að vera lágmarkskrafa að við gerðum slíkt hið sama fyrir okkar eigin landsmenn (karla og konur).


mbl.is Íslenskri fjölskyldu vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen við því

Kristín (IP-tala skráð) 11.8.2009 kl. 16:39

2 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Hjartanlega sammála þér Emil, nú er sko nóg komið. Við gerðum margt gott fyrir Fisher, hvar eru þeir karlmenn núna sem mest hjálpuðu honum?

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 11.8.2009 kl. 17:44

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Við eigum ekki annað skilið en standa ein, annar eins rumpulýður eins og við á ekki skilið neitt annað.

Finnur Bárðarson, 11.8.2009 kl. 18:58

4 identicon

Samkvæmt æðstu lögum landsins, Stjórmarskránni, og að því gefnu að

fréttin sé rétt, þá má ekki vísa íslenskum ríkisborgara úr landi.

"66. grein

Engan má svipta íslenskum ríkisborgararétti. Með lögum má þó ákveða að

maður missi þann rétt ef hann öðlast með samþykki sínu ríkisfang í öðru

ríki. Útlendingi verður aðeins veittur íslenskur ríkisborgararéttur

samkvæmt lögum.

Íslenskum ríkisborgara verður ekki meinað að koma til landsins né verður

honum vísað úr landi. Með lögum skal skipað rétti útlendinga til að koma

til landsins og dveljast hér, svo og fyrir hverjar sakir sé hægt að vísa

þeim úr landi."

Kiddi (IP-tala skráð) 11.8.2009 kl. 19:02

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Misskildi færluna fullkomlega, biðst velvirðingar

Finnur Bárðarson, 12.8.2009 kl. 12:37

6 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Afsökun tekin til greina, Finnur sæll.

Emil Örn Kristjánsson, 12.8.2009 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Emil Örn Kristjánsson

Höfundur

Emil Örn Kristjánsson
Emil Örn Kristjánsson
Íhaldsmaður

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...gonguferd
  • ...cerne_abbas
  • ...nano
  • takk faroe islands 501x101px.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband